Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að nýjar viðræður milli Bandaríkjanna og Íran byrji síðdegis á morgun. Hann greindi fjölmiðlafólki frá þessu um borð í forsetaflugvél sinni í dag.Trump hætti við miklar árásir á Íran á laugardag og sagði að Íranar, Sádi-Arabía, Sameinuðu arabísku Furstadæmin og Katar hefðu beðið hann um að bíða með árásir. Hann sagði Bandaríkjaþjóðir halda því fram að samningur liggi fyrir um Hormússund og afkjarnorkuvæðingu Írana.Íranar segja að samningar séu að nást við Óman um nýja siglingaleið um Hormússund. Masoud Pezeshkian forseti Írans sagði í færslu á X, að Íranar ætluðu að leggja sig fram um að neyða óvininn til að standa við gerða samninga.