35 voru drepnir í drónaárás súdanska hersins í norður Darfur í dag. Nokkrir slösuðust í árásinni en fjöldi þeirra liggur ekki fyrir. Árásin var gerð á hóp fólks sem var samankominn í þorpinu Garra al-Zawaya í norður Darfur. Þorpið er undir yfirráðum RSF-uppreisnarhersins.Bæði súdanski herinn og RSF-uppreisnarherinn hafa í auknum mæli notað dróna í árásum sínum undanfarið. Samkvæmt Sameinuðu þjóðunum hafa yfir 1.000 verðið drepin í drónaárásum á þessu ári.Stríðandi fylkingar eru báðar sagðar bera ábyrgð á stríðsglæpum og árásum á almenna borgara í Súdan. RSF-uppreisnarherinn hefur þó verið sérstaklega ásakaður um að stunda gripdeildir, beita kynferðislegu ofbeldi og fremja grimmdarverk með skipulögðum hætti.