Nýtt landamærakerfi hefur haft aukinn fælingarmátt að sögn lögreglunnar á Suðurnesjum. Kerfið auðveldar að rekja og staðfesta ferðasögu útlendings inn og út af Schengen-svæðinu, en áður var stuðst við blekstimpla í vegabréfi viðkomandi sem gátu máðst út.Nýja kerfið hefur dregið úr hvata þeirra útlendinga sem hyggjast ekki virða heimildir til lögmætrar dvalar á Íslandi. NOKKURRA KLUKKUSTUNDA BIÐ EFTIR KÚNNUM Enn myndast langar biðraðir við landamæraeftirlit í Leifsstöð á hverjum morgni eftir að farþegar frá Bandaríkjunum og öðrum löndum utan Schengen-svæðisins hafa lent. Biðin er að jafnaði 60-90 mínútur.„Þegar það eru stórir dagar eins og var hérna í síðustu viku þá var allt upp í þriggja tíma bið eftir kúnnunum hérna út,“ segir Einar Árnason bílstjóri.„Svo getum við ímyndað okkur hvern