Óttast að myndefni áhafnar sem gert var upptækt verði eytt

Skipstjóri Banderos, skips Paul Watson-samtakanna, óttast að myndefni samtakanna af hvalveiðum á Faxaflóa verði eytt, og eða það notað gegn þeim í málsókn. Þau gera ráð fyrir að skipið sé hlerað.Shannon Mann skipverji á Bandero gagnrýnir framferði lögreglu, leitað hafi verið í skipinu án leitarheimildar og án viðveru áhafnar. Hún segir áhöfnina ekki vita hvað fjarlægt hafi verið úr skipinu eða skilið eftir um borð.„Lögregla hefur komið illa fram við okkur, það var logið að okkur, samskiptaleiðum okkar var lokað og við ekki fengið lögmætan aðgang.“Skipstjóri Bandero, Beck Straussner, kveðst fullviss um að myndbönd áhafnar verði notuð gegn þeim.
Óttast að myndefni áhafnar sem gert var upptækt verði eytt

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd