Lögreglan á Norðurlandi eystra handtók fimm á Akureyri síðdegis. Skotvopn fundust í tveimur bílum. Þetta staðfestir Hjalti Bergmar Axelsson aðstoðaryfirlögregluþjónn. Lögreglu barst tilkynning um grun um vopnaburð og voru tveir bílar stöðvaðir. Skotvopn fundust í þeim báðum.Kolbrún Björg Jónsdóttir aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Noðurlandi Eystra segir að lögreglu hafi borist tilkynning um mann sem otað hefði skotvopni að öðrum. Kolbrún segir að lagt hafi verið hald á tvenns lags skotvop en að lögregla veitti ekki frekari upplýsingar að svo stöddu. Fimm voru handteknir og fluttir í fangaklefa. Sérsveit ríkislögreglustjóra aðstoðaði lögreglu við aðgerðina. Engin meiðsli urðu á fólki.Karlmaður á þrítugsaldri var handtekinn í aðgerðum lögreglunnar á Akureyri í gær. Níu voru handteknir í fyr