Hápunktur Þjóðhátíðar í kvöld og búist við metfjölda á Akureyri

Hápunktur Þjóðhátíðar í Vestmannaeyjum er í kvöld þar sem brekkusöngur, kvöldvaka og blys eru meðal þess sem er á dagskránni og reiknað er með þúsundum gesta í Herjólfsdal.„Þjóðhátíð er alltaf frábær og einstök upplifun en þessi er búin að vera einstaklega góð með veðurguðina með okkur í liði. Ef þú hefur komið einu sinni á Þjóðhátíð og upplifað blysin, brekkusönginn, flugeldana og setninguna þá langar þig alltaf aftur,“ segir Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri Vestmannaeyja í kvöldfréttum RÚV.Nóg er einnig um að vera á Akureyri þar sem hátíðin Ein með öllu fer fram. Fjölbreytt dagskrá er víða um bæinn. Má þar nefna skógardaginn í Kjarnaskógi, stórtónleika og flugeldasýningu. Búist er við metfjölda á hátíðina í kvöld að sögn Halldórs Kristins Harðarsonar, skipuleggjanda hátíðarinnar.
Hápunktur Þjóðhátíðar í kvöld og búist við metfjölda á Akureyri

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd