Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út á áttunda tímanum í kvöld vegna hestaslyss. Samkvæmt upplýsingum frá Ásgeiri Erlendssyni, upplýsingafulltrúa Landhelgisgæslunnar, féll knapi af baki á Klofningsvegi á Vesturlandi.Þyrla Landhelgisgæslunnar er á leið á vettvang.