Dýrabein sem fundust í Búlgaríu í vikunni eru líklega úr loðfíl sem lifði á ísöld. Sérfræðingar vonast til að finna fleiri leifar á sömu slóðum.Beinbrotin fundust við vatnsborð Dónár nærri borginni Ruse í norðausturhluta Búlgaríu á miðvikudag. Vatnsborð árinnar hefur aldrei verið lægra en nú vegna mikilla hitabylgja og þurrka undanfarna mánuði.Beinin eru mjög líklega úr loðfíl sem lifði á ísöld samkvæmt Nikolay Nenov, forstöðumanni héraðssögusafnsins í Ruse. BEININ MÖGULEGA ÖLL ÚR SAMA FÍLNUM Fornleifafræðingar í Búlgaríu hafa þegar borið kennsl á kjálkabein, brot úr skögultönnum, hluta úr herðablaði og lærlegg. Nenov segir fundinn mikilvægan þar sem beinin séu vel varðveitt og hafi fundist á sama stað sem bendi til þess að þau séu öll úr sama fílnum.Talið er að dýrið hafi verið ungt og