Tvær þyrlur skullu saman við slökkvistörf

Tvær þyrlur skullu saman við slökkvistörf í Grikklandi í dag. Miklir skógareldar hafa kviknað víða og breiðast hratt út vegna mikils hvassviðris. Þúsundir hafa þurft að yfirgefa heimili sín.Miklir skógareldar breiðast hratt út í Grikklandi vegna mikils hvassviðris. Tvær þyrlur skullu saman við slökkvistörf.Þyrlurnar voru við slökkvistörf vestur af höfuðborginni Aþenu þegar þær skullu saman. Tveir voru í hvorri þyrlu en samkvæmt ríkissjónvarpinu E.R.T. var einum bjargað, en hinna er leitað.Kyriakos Mitsotakis forsætisráðherra Grikklands sagði í dag að veðurskilyrði yrðu áfram óhagstæð og næstu dagar mjög erfiðir. Þrír slökkviliðsmenn létust við slökkvistörf í síðustu viku.
Tvær þyrlur skullu saman við slökkvistörf

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd