Handtóku mann fyrir að ráðast á konu á bar

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út í fjórgang vegna líkamsárása í gærkvöld og í nótt.Skúli Jónsson aðstoðaryfirlögregluþjónn segir eina þeirra hafa átt sér stað á og fyrir utan bar á Laugavegi um sjöleytið í gærkvöld.Karlmaður á sjötugsaldri réðst á konu og veitti henni áverka í andliti. Hann hafi einnig reynt að veitast að starfsfólki. Maðurinn var handtekinn en konan var ekki flutt til aðhlynningar.Þá var ráðist á mann í Hafnarfirði á Strandgötu við Linnetsstíg klukkan fjögur í nótt. Áverkar hans voru minniháttar og árásarmaðurinn á bak og burt er lögreglu bar að garði. Það eigi eftir að koma í ljós hvort árásarþoli hyggist kæra árásina. ENGINN HANDTEKINN Í HEIMILISOFBELDISMÁLUM Lögregla var einnig kölluð út í tvígang vegna heimilisofbeldis. Í annað skiptið hafði eiginmaður
Handtóku mann fyrir að ráðast á konu á bar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd