Fimm handteknir í aðgerð lögreglu og sérsveitar á Akureyri

Lögreglan á Norðurlandi eystra handtók fimm á Akureyri síðdegis. Skotvopn fundust í tveimur bílum. Þetta staðfestir Hjalti Bergmar Axelsson aðstoðaryfirlögregluþjónn. Lögreglu barst tilkynning um grun um vopnaburð og voru tveir bílar stöðvaðir. Skotvopn fundust í báðum bílum.Fimm voru handteknir og fluttir í fangaklefa. Sérsveit ríkislögrgelustjóra aðstoðaði lögreglu við aðgerðina. Engin meiðsli urðu á fólki.Karlmaður á þrítugsaldri var handtekinn í aðgerðum lögreglunnar á Akureyri í gær. Maðurinn reyndist vera með hníf á sér og var hann vistaður í fangageymslu í nótt.
Fimm handteknir í aðgerð lögreglu og sérsveitar á Akureyri

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd