Veðurblíðu hefur sjaldan verið meira misskipt á milli landshluta í júlímánuði og nú í ár. Veðurstofan segir að júlímánuður hafi verið einn sá blautasti frá upphafi mælinga á Suðvestur og Vesturlandi.Á austanverðu landinu var mánuðurinn víða á meðal hlýjustu og þurrustu júlímánuða sem vitað er um. Á Teigarhorni var júlí hlýjasti mánuður frá upphafi mælinga, en þar hefur hiti verið mældur í hundrað fimmtíu og fjögur ár. Meðalhiti var 11,6 stig en fyrra met var 11 stig, það var í júlí árið 1926. Methiti mældist einnig á Dalatanga og á flestum sjálfvirku veðurstöðunum á Austfjörðum. ANNAR HANDLEGGUR Á SUNNANVERÐU LANDINU Ekki var sama uppi á teningnum í Reykjavík en þar var júlí töluvert kaldari og úrkomusamari. Meðalhiti í Reykjavík var 10,9 stig sem er 0,7 stigum undir meðallagi síðustu 1