Mikill erill var hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra síðasta sólarhringinn. Fjöldi fólks er á Akureyri um þessar mundir þar sem hátíðin Ein með öllu fer fram og tónleikar FM95BLÖ fóru fram á Akureyrarvelli í gærkvöld.Alls eru skráð 83 mál hjá lögreglu síðastliðinn sólarhring og tveir gistu í fangageymslu lögreglu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni. VOPNALAGABROT Á AKUREYRARVELLI Ein líkamsárás var tilkynnt til lögreglu og er hún nú til rannsóknar. Þá voru níu einstaklingar handteknir og einn þeirra vistaður í fangageymslu vegna vopnalagabrots á tónleikasvæðinu á Akureyrarvelli. Það mál er einnig til rannsóknar.Fjórir voru handteknir vegna fíkniefnalagabrots og var einn þeirra vistaður í fangageymslu. Málið er til rannsóknar. ENGINN GRUNAÐUR UM AKSTUR UNDIR ÁHRIFUM Átta