Sex gista í fangageymslu í Vestmannaeyjum eftir nóttina. Lögregla hafði í mörg horn að líta en fjöldi fólks skemmti sér á Þjóðhátíð í Herjólfsdal.Í tilkynningu segist lögreglan hafa haldið uppi stífu fíkniefnaeftirliti á hátíðinni. Níu mál tengd fíkniefnum hafi komið upp. Eitt þeirra sé til rannsóknar vegna gruns um sölu fíkniefna.Tvær minniháttar líkamsárásir voru tilkynntar til lögreglu sem sinnti einnig ýmsum verkefnum tengdum ölvun.