Að minnsta kosti fimm eru látnir og 41 er saknað eftir að eldur kviknaði um borð í ferju undan ströndu eyjunnar Madura í Indónesíu. 271 farþegi var í ferjunni sem var á leið frá borginni Surabaya á Austur-Java til Makassar á eyjunni Sulawesi. Myndir sem birtust í indónesíska fjölmiðlinum iNews sýna fjölda fólks í björgunarvestum í björgunarbáti. Á öðru myndefni sjást eldtungur og svartur reykur stíga upp frá ferjunni og fólk klifra úr henni. Basarnas, þjóðarbjörgunarsveit Indónesíu, segir í yfirlýsingu á samfélagsmiðlinum TikTok að eldurinn hafi kviknað milli sex og sjö í morgun. Björgunarsveitin staðfesti síðar að ferjan væri nánast alelda.Mikill eldur er í ferjunni eins og sést á þessari mynd.AP/BASARNAS / BASARNAS