Samstarf Þjóðkirkjunnar og Minningarsjóðs Ólafar Töru um sálgæslu fyrir baráttufólk verður hleypt af stokkunum í byrjun ágúst. Samfélagsmiðlar eiga stóran þátt í álagi á baráttufólk gegn kynbundnu ofbeldi.Ólöf Tara Harðardóttir lést í upphafi síðasta árs eftir áralanga baráttu gegn ofbeldi. Telma Árnadóttir, systir hennar segir ekki hlaupið að því að fá stuðning þegar álagið sem fylgir réttindabaráttu fer að segja til sín.„Við vorum að hugsa hver grípur utan um fólkið sem stendur í framlínunni? Þau eru að aðstoða aðra en fá enga aðstoð sjálf,“ segir Telma. Ekki allir hafi tök á að leita til sálfræðinga „Það geta verið langir biðlistar og kostar mikið,“ segir Telma.Minningarsjóður Ólafar Töru Harðardóttur vonast til að samstarf við þjóðkirkjuna verði að raunverulegum stuðningi fyrir baráttu