Karlmaður á þrítugsaldri var handtekinn í aðgerðum lögreglunnar á Akureyri í gær. Margt er um manninn í bænum yfir verslunarmannahelgina en hátíðin Ein með öllu fer þar fram.Andri Freyr Sveinsson, varðstjóri hjá lögreglunni á Akureyri, staðfestir að sérsveit ríkislögreglustjóra hafi aðstoðað lögreglu í aðgerð á Akureyrarvelli í gærkvöld, þar sem tónleikar FM95BLÖ fóru fram. VILJA EKKI SJÁ SVONA Níu voru handteknir í fyrstu en átta var sleppt á staðnum. Einn reyndist vera með hníf á sér og var vistaður í fangageymslu í nótt. Hann situr þar enn að sögn Andra og verður yfirheyrður í dag.Lögreglu hafi borist áreiðanleg ábending um að einhver í hópnum væri með vopn á sér. Þeir hafi talið brýnt að bregðast hratt og vel við enda sé vopnaburður í mannmergð óásættanlegur. Það hafi þó ekki komið