Vatnsyfirborð Dónar í sögulegu lágmarki og Ungverjar slökkva á kjarnorkuveri sínu

MVM Paks kjarnorkuverið er eina kjarnorkuver Ungverjalands.EPA / DANIEL KISSForsætisráðherra Ungverjalands, Peter Magyar, tilkynnti í færslu á X í gærkvöld að slökkt yrði á eina kjarnorkuveri landsins eftir að vatnsyfirborð Dónár náði sögulegu lágmarki. Þar af leiðandi er ekki hægt að halda því gangandi.Þetta er í fyrsta sinn í 44 ár sem Ungverjar stöðva starfsemi kjarnorkuversins. Kjarnorkuverið er staðsett í Paks suður af Búdapest og framleiðir um þriðjung allrar orkunotkunar í landinu.Veðurstofa Ungverjalands spáir yfir 40 gráðu hita næstu daga sem mun ná hámarki á fimmtudag þegar spáð er 42 gráðu hita.
Vatnsyfirborð Dónar í sögulegu lágmarki og Ungverjar slökkva á kjarnorkuveri sínu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd