Árásir halda áfram á Gaza þrátt fyrir samkomulag um afvopnun Hamas

Að minnsta kosti átta voru drepnir í nokkrum árásum Ísraela á íbúðarhúsnæði á Gaza í nótt. Stjórnvöld á Gaza segja aðra átta hafa verið drepna í gær í árásum sem meðal annars eyðilögðu sjúkravörur.Hamas-samtökin greindu frá því á föstudag að þau hefðu samþykkt að láta vopn sín af hendi. Samkomulagið gerir einnig ráð fyrir að hersveitir Ísraela fari frá Gaza þegar búið er að afvopna Hamas. Alþjóðleg öryggissveit taki síðan við og sjái um öryggismál í samvinnu við ný palestínsk lögregluyfirvöld.Afvopnunarsamkomulagið var unnið með Friðarráði Trumps en Ísraelar hafa ekki enn tjáð sig um samkomulagið. Heimildir AFP fréttaveitunnar herma að Ísraelar ætli ekki að draga sig frá Gaza nema Hamas samtökin verði raunverulega afvopnuð.
Árásir halda áfram á Gaza þrátt fyrir samkomulag um afvopnun Hamas

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd