Norræn menningarhátíð heyrnarlausra haldin á Selfossi

Um tvö hundruð og fimmtíu heyrnarlausir taka þátt í norrænni menningarhátíð heyrnarlausra sem fram fer á Selfossi þessa dagana.Fánum þjóðanna sem taka þátt í menningarhátíðinni er öllum flaggað á fánastangirnar við hringtorgið hjá Ölfusárbrú og verða uppi þar til hátíðinni lýkur 2. ágúst. Hátíð sem þessi er haldin á fjögurra ára fresti og ferðast á milli Norðurlandanna. Síðast var hún hér á landi árið 2006 og þá haldin á Akureyri. Setningarathöfn hátíðarinnar fór fram í stóru tjaldi í Sigtúnsgarði í gærkvöldi.„Þetta er bæði heiður og stolt og að standa í þessum undirbúningi, sem er búinn að standa í fjögur ár verða að veruleika, það er léttir og það er spennufall líka,” segir Daði Hreinsson, framkvæmdastjóri Félags heyrnarlausra.„Það er mikil stemning og mikill spenningur eins og ég segi,
Norræn menningarhátíð heyrnarlausra haldin á Selfossi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd