Frá vettvangi árásarinnar í Twin Falls, Idaho.AP/KMVT / UncreditedAð minnsta kosti þrír voru drepnir og tveir eru særðir eftir skotárás á hamborgarastað í Twin Falls í Idaho í gær. Lögregluyfirvöld segja að árásarmaðurinn hafi farið inn á veitingastaðinn In-N-Out Burger og skotið á fólk.Mikil hræðsla greip um sig og tugir viðskiptavina hlupu út af staðnum þegar árásarmaðurinn skaut á fólk. Lögregluyfirvöld segja að tala látinna gæti átt eftir að hækka. Árásarmaðurinn er látinn en lögregla hefur ekki gefið upp hvort árásarmaðurinn sé talinn með fjölda látinna.Um 56.000 manns búa í Twin Falls sem er staðsett í suður Idaho, tæpa 300 kílómetra frá Salt Lake City.