Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að Bandaríkin og Ísrael hafi samþykkt að bíða með frekari árásir á Írana, að því gefnu að samningar um endalok stríðsins náist fljótlega. Hann vill að Íranar opni Hormússund tafarlaust og bundinn verði endir á kjarnorkuógn Írana.Bandaríkjaforseti hafði hótað því að ráðast á Írana af fullum þunga. CNN greindi frá því að Bandaríkin og Ísrael ætluðu að gera sameiginlegar árásir, jafnvel um helgina, þar sem olíuinnviðir og raforkuverð yrðu hugsanleg skotmörk.Í færslu sem Bandaríkjaforseti birti á Truth Social í nótt segir hann að Bandaríkin séu tilbúin að gera aðrar árásir á Íran af svo miklum krafti að annað eins hafi ekki sést síðan í síðari heimsstyrjöld.Hann sagði að Íranar og fleiri ríki í Mið-Austurlöndum hefðu beðið hann um að gera ekki árásir. KRÓ