Búið að ná stjórn á skógareldunum í Gironde-héraði

Forsætisráðherra Frakklands, Sebastien Lecornu, segir að búið sé að ná stjórn á skógareldum í Frakklandi. Skógareldarnir, sem kviknuðu á miðvikudag í síðustu viku fyrir utan við borgina Bordeaux í Gironde-héraði, eru stærstu skógareldar í landinu síðan 1949.Eldarnir breiddust hratt út og 42 þúsund hektarar af landi urðu eldinum að bráð og um 240 heimili eyðilögðust í eldinum. Um 224 þúsund þurftu að yfirgefa heimili sín vegna eldanna en flestir hafa fengið að snúa heim á ný.Alls hafa 92.000 hektarar lands brunnið í skógareldum í Frakklandi í ár samkvæmt evrópska skógareldaeftirlitinu, European Forest Fire Information Systems (EFFIS). Það er mesta eyðilegging vegna skógarelda á einu ári á síðustu tuttugu árum.Talið er að eldarnir í Gironde-héraði hafi kviknað út frá neista frá vél sem notuð
Búið að ná stjórn á skógareldunum í Gironde-héraði

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd