Sumarbústaður við Þingvallavatn gjöreyðilagðist í bruna

Sumarbústaður við Veiðilund við Þingvallavatn gjöreyðilagðist í bruna í kvöld. Brunavörnum Árnessýslu barst tilkynning um eldinn um 21:20 og bústaðurinn varð fljótt alelda.„Þegar fyrstu slökkviliðsmenn komu á staðinn þá var samt húsið eiginlega alelda þannig að það var farið strax í það að verja gróður þarna í kringum húsið og halda eldinum í skefjum. Þarna þarf að flytja allt vatn með tankbílum á staðinn,“ segir Lárus Kristinn Guðmundsson, settur slökkvistjóri Brunavarna Árnessýslu.Hann segir að fólk hafi verið í bústaðnum þegar eldurinn kom upp en enginn hafi slasast.Valgeir Vilhjálmsson, sumarbústaðareigandi við Þingvallavatn, var staddur á hátíð niðri við Þingvallavatn ásamt fleira fólki sem tók eftir reyknum í sumarbústaðahverfinu Veiðilundi.„Það verður alelda mjög fljótt. Við heyrum
Sumarbústaður við Þingvallavatn gjöreyðilagðist í bruna

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd