Eldur í sumarbústað við Þingvallavatn

Eldur kviknaði í sumarbústað við Þingvallavatn í kvöld.Aðsend myndBrunavarnir Árnessýslu fengu útkall á tíunda tímanum í kvöld vegna elds í sumarbústað við Þingvallavatn.Lárus Kristinn Guðmundsson, settur slökkvistjóri Brunavarna Árnessýslu, segir að bústaðurinn hafi verið alelda þegar slökkvilið frá Laugavatni og Selfossi komu á staðinn.Hann segir að fólk hafi verið í bústaðnum þegar eldurinn kom upp en enginn sé slasaður. Hann segir reyk leggja um bústaðarhverfið en slökkvilið hefur náð stjórn á eldinum og nærliggjandi bústaðir séu ekki í hættu.Slökkvistarf stendur enn yfir.
Eldur í sumarbústað við Þingvallavatn

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd