Skemmtanahald gengið vel um allt land þrátt fyrir minni háttar fíkniefnamál

Skemmtanahald hefur gengið vel um allt land um helgina að sögn lögreglu þrátt fyrir minni háttar fíkniefnamál.Þótt útihátíðir á Akureyri og í Vestmannaeyjum laði að sér flesta gesti eru margar aðrar hátíðir um allt land þar sem fólk lyftir sér á kreik.Á fjölskylduhátíðinni Neistaflugi í Neskaupstað gátu þyrstir tekið þátt í freyðivínshlaupi og boltaglaðir í árlegum sápubolta. Á Holtssandi í Önundarfirði reis fjöldi bygginga í sandkastalakeppni sem þar fór fram.Á Unglingalandsmóti UMFÍ á Sauðárkróki eru þúsund börn á aldrinum 11–18 ára sem njóta lífsins ásamt fjölskyldum sínum. Þar er keppt í yfir 20 íþróttagreinum.Í Reykjavík er hátíðin Innipúkinn í Austurbæjarbíói, sem dregur að sér fjölda gesta. Þar koma meðal annars fram FM Belfast og Retro Stefson.
Skemmtanahald gengið vel um allt land þrátt fyrir minni háttar fíkniefnamál

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd