Að minnsta kosti þrír létust í sprengingu við kaffihús í Moskvu

Að minnsta kosti þrír létust og 15 særðust í sprengingu sem varð nálægt kaffihúsi í Moskvu í dag, að sögn lögreglu. Hún hefur ekki greint frá því hvað olli sprengingunni en samkvæmt Telegram-rásinni Baza stafaði sprengingin af gassprengingu í eldhúsi kaffihússins.„Miðað við þær upplýsingar sem við höfum varð sprenging í dag um klukkan 20:10 (17:10 GMT) nálægt sumarkaffihúsi. Hún dró þrjá til dauða og særði 15, misalvarlega,“ sagði lögreglan í Moskvu í samtali við ríkisfréttastofuna Ria Novosti.Rannsóknarlögreglumenn og tæknideildarlögregla fóru á vettvang ásamt slökkvibílum og sjúkrabílum.
Að minnsta kosti þrír létust í sprengingu við kaffihús í Moskvu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd