Hörðum diski með afriti af óútgefinni bíómynd var stolið af skrifstofum streymisveitunnar Netflix nýlega. Kvikmyndagerðarmennirnir að baki henni hafa lögsótt streymisveituna vegna þessa.Myndin heitir Fortitude og er njósnatryllir sem gerist á tímum seinni heimsstyrjaldarinnar. Nicolas Cage fer með aðalhlutverk en þar koma einnig fram leikararnir Matthew Goode, Michael Sheen og Ben Kingsley.Það tók um sjö ár að gera myndina og kostaði tæpa sex milljarða króna. NETFLIX SEGIST EKKI BERA ÁBYRGÐ Framleiðendur hennar vilja að Netflix greiði þeim meira en 13 milljarða króna í bætur. Þeir halda því fram að framtíðarsölu myndarinnar hafi verið teflt í tvísýnu.Í frétt Guardian segir að Netflix hafi fengið stafrænt afrit af myndinni í júní. Það var til áhorfs innanhúss og því næst átti að eyða því