Það besta sem kom fyrir mig var þegar tilvera mín molnaði í sundur árið 2003. Ástarsamband leystist upp. Ég datt út af húsnæðismarkaðnum. Hafði aðeins efni á að leigja húsnæði án baðaðstöðu. Hljómsveitin mín gafst upp á ruglinu og streðinu. Leystist upp í einingar sínar. Menn sem ég taldi vini voru eingöngu viðhlæjendur. Skömmu síðar þekkti ég alla bardrauga Reykjavíkur...