Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur ekki farið fram á gæsluvarðhald yfir áhöfn Banderos, skips Paul Watson-samtakanna. Þetta staðfestir Ásgeir Þór Ásgeirsson aðstoðarlögreglustjóri.Áhöfnin var handtekin á fimmtudagskvöld eftir að hafa reynt að trufla för hvalveiðiskipsins Hvals 9. Landhelgisgæslan yfirtók skipið á fimmtudagskvöld og sigldi því til hafnar í Reykjavík í gær. SKIPIÐ FER EKKERT NÆSTU DAGA Tuttugu og einn er í áhöfninni og voru allir yfirheyrðir í gær, ýmist í varðskipinu Freyju eða á lögreglustöð.Ásgeir segir að áhöfninni sé skylt að halda sig um borð í skipinu þar til annað er ákveðið. Samgöngustofa yfirfór Bandero í gær að beiðni lögreglu og segir Ásgeir stofnunina hafa afturkallað haffærni skipsins. Það fari því ekkert næstu daga og áhöfninni er gert að dúsa í því fram