Skemmtanahald gekk vel fyrir sig fyrsta daginn

Verkefni lögreglu voru óvenjufá miðað við fyrsta dag verslunarmannahelgar. Nóttin var að mestu leyti stórtíðindalaus að undanskildu útkalli Landhelgisgæslunnar til Vestmannaeyja þar sem þyrla sótti mann sem slasaðist á fæti.Lögreglan í Vestmannaeyjum segir að skemmtanahald virðist hafa gengið vel fyrir sig.Lögreglan á Norðurlandi eystra hafði afskipti af þremur vegna ölvunar en enginn gisti fangageymslu í nótt. Lögregla hafði tvisvar afskipti af börnum sökum áfengisneyslu.Lögreglan á Suðurlandi stöðvaði ökumann grunaðan um akstur undir áhrifum fíkniefna. Grunurinn reyndist á rökum reistur. Magnús Ragnarsson, aðalvarðstjóri á Suðurlandi, segir umferð hafa gengið óvenjuvel og dreifst vel. Engin alvarleg slys hafi orðið og almennt lítið um útköll.
Skemmtanahald gekk vel fyrir sig fyrsta daginn

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd