Giorgia Meloni forsætisráðherra Ítalíu greindi frá þessari ákvörðun á samfélagsmiðlum síðdegis í gær. Meloni kallaði þetta neyðarráðstöfun, til að vernda þjóðaröryggi, og hún væri tímabundin.Frakkar hafa tekið upp aukið eftirlit á landamærum sínum að Spáni. Stjórnvöld í Madrid hafa sent hermenn til Ceuta og hafa sagt að nánast allir þeirra um það bil sextíu þúsund manns sem komið hafa yfir landamærin í Ceuta síðustu dægrin, hafi snúið til baka til Marokkó.Spánverjar benda ennfremur á að það sé landamæraeftirlit í Ceuta; fólk sem komi þangað sé ekki sjálfkrafa komið inn fyrir landamæri Schengen ríkjanna.Ítalir eru, eftir því sem næst verður komist, eina ríkið innan Schengen sem hefur afnumið frjálsa för gagnvart Spáni, en skilaboð um álíka aðgerðir hafa þó komið frá Finnlandi og Danmörku.