Bráðabrigðaniðurstöður úr blóðsýnatöku úr hræjum 15 fíla sem fundust dauðir í Kenía sýna mikið magn blásýru í hræjum fílanna. Allt bendir til þess að fílarnir hafi gætt sér á tómötum sem úðaðir höfðu verið með skordýraeitri frá nærliggjandi bæjum.Fílarnir 15 fundust á mismunandi stöðum í kringum þjóðgarðinn og voru þeir á mismunandi aldri og af báðum kynjum svo vísindamenn gátu fljótlega útilokað að dauðsföllin takmarkist ekki við aldur eða kyn.Tíu fílanna fundust illa haldnir með lömunareinkenni og drápust innan tveggja daga. Hinir fimm fílarnir fundust dauðir.Dauði fílanna hefur vakið upp áhyggjur af auknum landbúnaði nærri Amboseli-þjóðgarðinum en fílar eiga það til að villast inn á ræktarland í leit að fæðu og vatni. Þjóðgarðurinn er heimsfrægur fyrir fjölbreytt dýralíf sitt. Hann nær