Frá Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum í gærkvöld.Aðsend / JonfromIcelandSex minniháttar fíkniefnamál hafa komið upp á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Í tilkynningu lögreglunnar í Vestmannaeyjum segir að lögreglan haldi úti öflugu fíkniefnaeftirliti um helgina.Nokkrum var veitt aðstoð í gærkvöld og nótt vegna ölvunar. „Þrátt fyrir það er ekki annað að sjá en gestir á Þjóðhátíð séu komnir til þess að skemmta sér og öðrum,“ segir í tilkynningu lögreglu.Sólin leikur við Þjóðhátíðargesti og mun gera áfram.