Skemmtanahald gengið vel fyrir sig fyrsta daginn

Lögregla var með óvenjufá verkefni miðað við fyrsta dag verslunarmannahelgar. Nóttin var að mestu leyti stórtíðindalaus að undanskildu útkalli Landhelgisgæslunnar í Vestmannaeyjar, þar sem þyrla Gæslunnar sótti mann sem hafði slasast á fæti.Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Vestmannaeyjum virðist skemmtanahald um verslunarmannahelgi hafa gengið vel fyrir sig.Lögreglan á Norðurlandi eystra hafði afskipti af þremur vegna ölvunarástands en enginn gisti fangageymslu í nótt. Tvö tilfelli komu upp þar sem lögregla hafði afskipti af börnum sökum áfengisneyslu.Lögreglan á Suðurlandi stöðvaði einn einstakling vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna. Grunurinn reyndist á rökum reistur. Magnús Ragnarsson, aðalvarðstjóri hjá Lögreglunni á Suðurlandi, segir umferð hafa gengið óvenjuvel fyrir
Skemmtanahald gengið vel fyrir sig fyrsta daginn

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd