Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út á mesta forgangi í gærkvöld vegna manns sem slasaðist alvarlega á fæti í Vestmannaeyjum.Útkallið barst á tíunda tímanum og var maðurinn sóttur á flugvöllinn í Heimaey, samkvæmt upplýsingum frá Ásgeiri Erlendssyni, upplýsingafulltrúa Landhelgisgæslunnar. Þyrlan lenti á Landspítalanum í Fossvogi klukkan 23:40 og var maðurinn fluttur á bráðamóttökuna til aðhlynningar.Nóttin var að öðru leyti stórtíðindalaus, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Vestmannaeyjum.