Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur ekki farið fram á gæsluvarðhald yfir áhöfn Banderos, skips Paul Watson-samtakanna. Þetta staðfestir Ásgeir Þór Ásgeirsson aðstoðarlögreglustjóri.Áhöfnin var handtekin á fimmtudagskvöld eftir að hafa reynt að trufla för hvalveiðiskipsins Hvals 9. Landhelgisgæslan tók yfir skipið á fimmtudagskvöld og sigldi því til hafnar í Reykjavík í gær. SKIPIÐ FER EKKERT NÆSTU DAGA 21 er í áhöfn Bandero og voru allir yfirheyrðir í gær ýmist um borð í varðskipinu Freyju eða á lögreglustöð.Ásgeir segir að áhöfninni sé skylt að halda sig um borð í skipinu þar til annað er ákveðið. Samgöngustofa yfirfór Bandero í gær að beiðni lögreglunnar og segir Ásgeir stofnunina hafa afturkallað haffærni skipsins. Skipið fari því ekkert næstu daga.Í fréttum í gær kom fram að lögreg