Tvö grundvallaratriði valda já-sinnum erfiðleikum fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna í lok ágúst. Í fyrsta lagi aðildarviðræðurnar frá 2009 til 2013 sem lauk án árangurs og án þess að undanþágur hafi boðist í sjávarútvegs- og auðlindamálum. Í öðru lagi hvað Íslandi hefur farnast vel síðan þá.