Þegar frídagur verslunarmanna var haldinn hátíðlegur í fyrsta sinn árið 1894 markaði hann ákveðin þáttaskil. Á þeim tíma átti vinnandi fólk ekkert sumarfrí og helgarfrí voru alls ekki sjálfsögð. Þarna fékk verslunarfólk hins vegar frí og Verslunarmannafélag Reykjavíkur stóð fyrir útiskemmtun með ræðuhöldum, leikjum, lúðraspili og söng.