Varað við hvössum vindstrengjum við fjöll á Austfjörðum

Í dag, laugardag, og fram að hádegi á morgun má búast við hvössum vindstrengjum við fjöll á sunnanverðum Austfjörðum, segir í tilkynningu frá veðurfræðingi Vegagerðarinnar.Hviður geta náð allt að 25 m/s og getur slíkur vindur verið varasamur fyrir ökutæki og tengivagna sem taka á sig mikinn vind.Í athugasemd veðurfræðings á Veðurstofu Íslands segir að í dag verði norðan og norðvestan 5-13 m/s, en 10-18 austantil, hvassast á sunnanverðum Austfjörðum. Veðurstofan varar einnig ökumenn við snörpum vindhviðum í vindstrengjum á þessum slóðum.Það verður rigning eða súld með köflum á Norður- og Austurlandi, en dregur hægt úr vætu þegar líður á daginn. Léttskýjað í öðrum landshlutum, en líkur á þokulofti við norðurströndina. Hiti 6 til 18 stig, hlýjast sunnan- og vestantil.Á morgun verður norðlæg e
Varað við hvössum vindstrengjum við fjöll á Austfjörðum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd