Í dag verður norðan og norðvestanátt, 5 til 13 metrar á sekúndu en 10 til 18 austantil og hvassast á sunnanverðum Austfjörðum. Búast má þar við snörpum vindhviðum í vindstrengjum sem geta verið varasamar fyrir ökutæki og tengivagna sem taka á sig mikinn vind.