Allir skipverjar Banderos, skips Paul Watson-samtakanna, voru handteknir og í kjölfarið teknir í skýrslutöku í gær. Flestallar skýrslutökurnar fóru fram í Freyju, varðskipi Landhelgisgæslunnar, en nokkrir skipverjar, sem taldir eru bera meiri ábyrgð en aðrir, voru yfirheyrðir á lögreglustöð.