Sigrún Jóhannsdóttir var nýkomin heim í fallega húsið sitt í Stykkishólmi þegar hún ákvað að setjast út undir vegg með handavinnuna sína. Sigrún, sem er þekkt í Hólminum sem „lopapeysukonan“ sat þannig að sauma tölur á lopapeysu þegar hún fann reykjarlykt. Hún stóð upp, gekk fyrir horn og sá hvernig eldtungur teygðu sig út bakdyramegin. Skömmu síðar stóð húsið í ljósum logum.