Lundum á norsku eyjunni Røst fækkaði um fimmtung milli ára

Lundum á norsku eyjunni Røst hefur fækkað um fimmtung á einu ári. Tveir þriðju sjófuglategunda í Noregi eru á válista.Fyrir tæpum fimmtíu árum síðan, 1979, urpu um 1,4 milljónir lundapara á eyjunni Røst, yst á Lófóten í Noregi. Í ár eru pörin aðeins 165 þúsund og 88% stofnsins er horfinn. 88% LUNDASTOFNS EYJUNNAR HORFINN Røst er þekkt fyrir stóra lundabyggð. Hnignun lundastofnsins hefur verið sérlega mikil að undanförnu og varppörum hefur fækkað um fimmtung á einu ári.Vísindamenn segja fækkunina óvenju mikla og vísa til fæðuskorts sem einnar helstu ástæðu hennar. Síld, sem áður var mikilvægasta fæða lunda á þessum slóðum, hefur fært sig norðar og er nú nánast horfin úr fæðu fuglanna.Þeir þurfa því að fljúga langar vegalengdir út á haf til að afla sér fæðu, sem útheimtir mikla orku. Það
Lundum á norsku eyjunni Røst fækkaði um fimmtung milli ára

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd