Eldur kviknaði í dómkirkju heilags Basils

Wikimedia Commons / Yuriy D.K.Eldur kviknaði í dómkirkju heilags Basils við Rauða torgið í Moskvu í nótt. Rússneska fréttastofan TASS segir að eldurinn hafi kviknað í skrifstofu á 1. hæð þar sem eldur komst í persónulegar eigur og húsgögn.Eldurinn náði ekki að breiðast út og enginn slasaðist. Búið er að slökkva eldinn en óljóst er um eldsupptök.Dómkirkja heilags Basils á Rauða torginu er eitt helsta kennileiti Moskvuborgar.
Eldur kviknaði í dómkirkju heilags Basils

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd