Rússar gerður árásir á fimm hverfi Kyiv í nótt.AP / Dan BashakovAð minnsta kosti níu voru drepnir og 28 eru særðir eftir árásir Rússa á Kyiv, höfuðborg Úkraínu, í nótt. Fjögur börn eru meðal látinna.Flugskeytaárásir voru gerðar á fjölbýlishús og aðrar byggingar í fimm hverfum borgarinnar. Búið er að bjarga 105 manns úr húsunum. Blaðamenn AFP greindu frá því að þeir hafi heyrt yfir tíu sprengingar í röð.Þetta er önnur stóra árásin sem Rússar gera á borgina á tveimur sólahringum. Varnarmálaráðuneyti Rússa sagði í morgun að árásir næturinnar hefðu beinst að hernaðarlegum innviðum í borginni og dreifingarstöðvum.