Flutningaskip á Hormússundi nærri ströndum Dibba Al Fujairah í Sameinuðu arabísku furstadæmunum 21. júlí sl.EPA / StringerÁrás var gerð á tankskip úti fyrir ströndum Lima í Óman í nótt. Tjón varð á vélarrými skipsins en bresk siglingastofnun segir að enginn hafi slasast í árásinni.Íranar hafa stöðvað nær allar skipasiglingar um Hormússund og skip þurfa bæði leyfi Írana og greiða tolla til að sigla um sundið. Íranski byltingarvörðurinn hefur ráðist á og stöðvað fjölda skipa á siglingu. Íranar halda því fram að þeir hafi náð fullri stjórn á Hormússundi.Siglingaeftirlitsfyrirtækið Kpler segir í færslu á X að dregið hafi verulega úr siglingum um sundið.