Miklir þurrkar auka hættu á skógareldum

Miklir þurrkar geisa nú á um helmingi landsvæðis í Englandi og Wales eftir langvarandi þurrk á Bretlandi. The Times segir að breska veðurstofan hafi varað við því að hætta á skógareldum sé mikil en stór svæði í suður og mið Englandi og Wales séu orðin mjög þurr.Hiti mældist víða yfir 35 gráður á miðvikudag þegar fjórða hitabylgja sumarsins gekk yfir. Miklar annir hafa verið hjá slökkviliðum og á síðustu tveimur vikum hafa borist útköll vegna elda á 90 mínútna fresti.Miklir skógareldar kviknuðu í Dunwich Heath í Suffolk á miðvikudag, aðeins tæpum fimm kílómetrum frá Sizewell B, kjarnorkuverinu. Dunwich Heath er vinsælt útivistar- og göngusvæði og dregur til sín mikinn fjölda ferðamanna árlega. Ferðamenn sem gistu í um 200 hjólhýsum og íbúðum þurftu að yfirgefa gististaði sína vegna eldanna.
Miklir þurrkar auka hættu á skógareldum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd