Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna viðurkennir að 14 milljóna dollara endurbætur á Spegilstjörninni (e. Reflecting pool) við Lincoln-minnisvarðann í Washington DC, sem hófust að frumkvæði Donalds Trump Bandaríkjaforseta, hafi verið gallaðar. Þá fallast yfirvöld á að fella niður sakamálið gegn fyrrum ólympíumanninum David Hearn, en hann var sakaður um að hafa skemmt tjörnina, samkvæmt nýjum dómsskjölum frá Jeanine Pirro, ríkissaksóknara í DC.CNN greinir frá.„Það var ekki fyrr en eftir að ákæra [gegn Hearn] var gefin út að innanríkisráðuneytið afhenti ríkissaksóknaraembættinu í DC frekari skjöl sem bentu til þess að skemmdir á spegiltjörninni við Lincoln-minnisvarðann í júní 2026 hafi verið afleiðing af gölluðum frágangi verktakans, Atlantic Industrial Coatings, og flýtis við að ljúka verkinu f