„Við hvetjum stráka til að koma að æfa dans“

Ballerínur frá Norðurlöndunum hafa dansað saman í Listdansskóla Íslands undanfarna viku.Það hefur verið skemmtilegt og erfitt, segja nemendur sem vilja sjá fleiri stráka í hópi dansara.Námskeiðið hefur verið haldið í tuttugu ár og í ár er Ísland, í fyrsta sinn, gestgjafi. Nemendur frá listdansskólum í Noregi, Finnlandi, Svíþjóð og Danmörku hafa æft saman frá morgni til kvölds og styrkt samstarf skólanna.Markmiðið er bæði að vekja athygli á námi listdansskólanna og að efla kennslu meðal nemenda sem skara fram úr og sýna nemendum tækifærin sem geta falist í dansinum.
„Við hvetjum stráka til að koma að æfa dans“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd